Eins og við vitum er það hverjum skóla mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvernig nemendum hefur litist á námskeið sem þeir hafa tekið.
Háskólinn í Osló er þar engin undantekning, en þó verð ég að segja að þeir ganga örlítið lengra í spurningunum heldur en aðrir skólar sem ég hef svarað sambærilegum könnunum hjá.
Í viðleitni sinni til þess að athuga hvernig mér hefur liðið á námskeiðinu (eða hvað annað getur það verið), leggja þeir fram spurninguna sem ég setti sem fyrirsögn þessarar færslu:
What do you think about psychological learning environment of this course?
Sálfræðilegt námsumhverfi námskeiðsins er þeim greinilega mjög mikilvægt.
Og af því ég veit ekki einu sinni hvernig ég á að svara slíkri spurningu ákvað ég að velja "slightly satisfied" bara til að sjá hversu gagnvirkir þeir eru og viti menn, birtist mér spurningin: "What could have been done better?" Þeir eru þó amk. gagnvirkir. En ég er enn í jafnmikilli óvissu um hvernig ég á að svara spurningunni.
Staulast framúr lykkjunni sem ég setti á könnunina mína og fæ þá næstu spurningu:
What do you think about the physical learning environment of this course?
Þessari er þó hægt að svara - en boy oh boy. Skyldu þeir vera að spyrja um stólinn og borðið sem ég sat á/við eða .... kannski bara eitthvað allt annað. Bjúrókratarnir í Oslóarháskóla eru eitthvað alltof ... sálfræðilegir í augnablikinu.
Áfram heldur ballið:
Do you know how to lodge a complaint concerning both the psychological and the physical learning environment?
Uuuuuhhh. Nei.
Og viti menn, þá bara segja þeir manni nákvæmlega það:
If you want to lodge a complaint concerning the physical environment you can fill out a form which is available at the Infosenter.
If you want to lodge a complaint concerning the psychological environment you can book a meeting with one of the student advisors at the Infosenter.
The Infosenter is located in Urbygningen/Domus Academica at the first floor.
Þá veit ég það!
Síðan lauk könnuninni á nokkuð venjulegan hátt og allir héldu leiðar sinnar ... errr, það er víst önnur saga.
BTW. Ég er búin í prófum og á leiðinni heim á frónið eftir slétta fimm daga. Æ það verður ekkert leiðinlegt að kíkja í heimsókn þangað.
