Breytingar framundan

2 Jul 2006 | elfur

Eins og lýðnum má vera ljóst verða breytingar hjá mér í byrjun ágúst nk. þegar ég flyt tímabundið til Osló til þess að slá lokahöggið í námsbrölti mínu.
Ég hef minnst á það áður að ég er að setjast á norskan skólabekk að nema upplýsinga- og samskiptatæknilögfræði. Ég hef líka minnst á það áður hversu frábæra íbúð ég tók á leigu.

Það sem ég hef ekki minnst á áður er að öllu þessu fylgja breytingar. Breytingar á mínum högum og ekki síst breytingar á þessum vef.
Ég hef reynt að fremsta megni að halda vefnum frekar formlegum nokkuð "professional". Hefur þetta verið stefnan af ýmsum ástæðum og ekki síst þeim að ég hef notað þennan vef fyrst og fremst sem kynningartæki sjálfrar mín fremur en upplýsingaveitu um þvottadaga og þess háttar (ólíkt ónefndum heilbrigðisráðherra :)
Ég mun líklegast aldrei skrifa um þvottadaga og því síður tilgreina efnisatriði dagsins með tímastimpli líkt og sú ónefnda gerir enda er enn nokkur tími í að minn dagur verði eins þétt skipaður og hennar.

Þar sem fjarlægðin við nákomna mun hins vegar aukast til muna og samskiptin verða óreglulegri, má fyllilega gera ráð fyrir því að hér komi óreglulega pistlar um uppákomur daganna á nokkuð meiri persónulegum nótum en verið hefur hingað til. Eins munu jafnvel birtast ljósmyndir af mismerkilegum atburðum, svona eins og gengur og gerist á venjulegum persónulegum vefsíðum.
Af þessari ástæðu er ekki ólíklegt en að útlit vefsins taki einnig einhverjum breytingum til þess að bera efnislegar breytingar enda vel kominn tími til, svo ég minni enn á fyrri færslur mínar.

 

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd><blockquote>
  • Lines and paragraphs break automatically.
More information about formatting options